Gummi Borgar

Danmörk

13.01.2008 14:38:39 / gummib

Hver les blogg í dag ??

Djöfull er þetta orðinn út dauður anskoti, það skoða ekki neinn heilvita maður í dag. Ég fór inn á þetta núna fyrir einskæða tilviljun og vitir menn ég var búinn að gleyma lykilorðinu til að komast hérna inn, en eftir smá yfirlegu og búinn bókstaflega að setja hausinn í bleiti ( ofan í kókdósina sem ég er með hérna við hliðina á mér ) þá fattaði ég hvað það var og það er ********* . Og já fyndið að sjá hvað seinust færslurnar eru það er svona fyrir næstum ári síðan þegar ég var einvhern tímann ný búinn að vera á bretti uppi í bláfjöllum, en já það var að opna í fyrsta skipti í gær uppi í fjöllum þennan veturinn. þetta er ekkert orðinn neinn vetur hérna á þess ÍS landi, þetta er bara orðið bullshit.

En Já maður er núna búinn með helminginn af þessu blessaða BS námi sem ég er hérna að rembast við í HR sem er í raun bara helvíti gaman. Þetta er auðvitað skuggalega erfitt en þetta á eftir að borga sig seinna þegar ég er orðinn mjög ríkur og er farinn að slaka á Björgólfi, drekkandi margarítur og horfa út á hafið einvhversstaðar á einvherri eyju sem við vorum að kaupa okkur.

En já svona er þetta gaman að geta hent inn hérna færsum svona á árs fresti en ég held nú að ég fari bara að hafa sambandi við þá þarna á blog.central og láti þá bara eiða þessari síðu út þetta er svo mikið skíta blogg hvort eð er.

 

En ég nenni ekki að skrifa meira ég ætla að fara halda áfram að forrita í matlab einhver stærðfræði dæmi sem ég á víst að klára fyrir morgun daginn...

 

Kv Gummi Borgar ...


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 17:31:03 / gummib

Próflok !!!

Jæja nú er komið að próflokum og mun seinasta prófið vera á morg og þá er ekki seinna vænna en að fara að huga að því hvað á að gera á föstudaginn. Ég held að ekkert annað komi til greyna en massa próflokadjamm á Broadway sé málið en það er fjöldi af fólki sem ég er búinn að tala við hérna í HR sem ætlar að gera víst allt vitlaust á þessu balli. Þannig ef þú ert það óhepin/nn að hafa ekki náð að redda þér miða á skólaverði mæli ég með að vera ekki að pæla of lengi í þessu og skella sér á Broadway og ná sér í miða fyrir Föstudaginn.

Og þeir vitleisingar sem ég þekki sem lesa þetta eiga að drulla sér að ná sér í miða því þetta verður ruglað djamm. ....

Heyrumst og sjáumst ;

Kv Gummi Borgar


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 19:03:32 / gummib

Góður dagur !!!

 

 

Þetta er búið að vera rugl góður dagur. Ég er búinn að vera í Bláfjöllum í allan dag og búið að vera ekkert smá gaman. Veðrið var svona upp og ofan, hvassviðri og soldið mikil snjókoma og skafrenningur. En það var ekkert að stoppa mig og Gumma frænda í að vera að renna okkur í allan dag. En ég verð að segja það að þetta er allt að koma hjá mér með tæknina á brettinu aftur kallinn var farinn að taka nokkrar pósur á pallinum undir lokin og bara nokkuð góðar ef ég segi sjálfur frá, en enn vantar soldið upp á að maður verði mjög góður. En já, mjög gaman í fjallinu og held ég að það verði ekkert úr lærdómi í dag og held ég að það sé bara best að fara leigja spólu og hlamma sér fyrir framam TV og glápa á eikkað sjétt.

Heyri í ykkur dúllurnar mínar, kveðja ;

Gummi Borgar


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 14:47:16 / gummib

Jess snjór !!

Jæja nú lítur út fyrir að maður geti komist á bretti, það er búið að snjóa helling í brekkurnar í Bláfjöllum og eru mikklar líkur á að það verði fullt af snjó á morgun þarna uppfrá. Það er lokað í dag vegna veðurs og vona ég bara að það sé að kingja niður snjónum þarna uppfrá. En þar sem ég er að fara á morg er pæling hvort að einhver ætli að kíkja líka, það er spurning hvort að ég fái einhver svör þar sem að það er svo lítið að liði sem les þetta hvort eð er. En allaveganna post here ef þú ert game í bretti á morg.

Ltr Gummi Borgar


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 23:18:16 / gummib

Bikarúrslitaleikurinn í handbolta.....

Ég var að horfa á fréttirnar áðan og voru íþróttafréttir akkurat þegar ég settist fyrir framan tv, en það er ekki það sem þetta er um, málið er að á þessum áðurnefnda handboltaleik brutust út slagsmál þar sem stuðningsaðilar fóru að slást og brutust slagsmálin út á völlinn. En málið er að ef maður skoðar þetta vel þá sést hvernig starfsmenn gæslunar eru að berja gaurana sem eru að slást, svo er einn gæslu gaurinn með einn þeirra í hálstaki og á meðan er annar gæslu gaur að dúndra í síðuna á gaurnum. Ég veit að þetta voru slagsmál á handboltaleik og er það alveg út í hött að það hafi átt sér stað, en þetta fynst mér samt sem áður alveg það vesta þegar maður horfir upp á svona. Maður hefur nú alveg lent í að sjá þetta í miðbænum þegar dyraverðir eru að notfæra sér bolina sem þeir eru í til að berja einvherja sem eru með einhver læti inni á stöðunum, en nú var þetta allt tekið upp á myndband og ætla ég að vona að þessi gæjar sleppi ekki.

 Kv; Gummi Borgar


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 22:55:39 / gummib

Hello !!!!!!!!

Jæja þetta er búinn að vera góður dagur, ég hef ekki séð teljarann fara svona hátt í langan tíma, heilir 14 núna þegar ég fór inn í fyrsta sinn í dag. En já ég og fleiri sem ég þekki eru orðnir soldið mikkir myspace nördar, eins og hann Hrolli vinur minn. Hann keypti tölvu fyrir viku og í dag gerir hann ekkert annað en að hanga á myspace og veiða stafi á msn. Það er alveg fáránlega erfitt að tala við hann t.d. núna á msn eftir að hann fékk sér svoleiðis.Maðurinn hefur ekki átt tölvu alla sína æfi og er núna fyrst að byrja að fatta hvað er að vafra um á netinu og eiða tíma sínum í eitthvað bull eins og að skoða blogg síður og þess háttar. En málið er að ég var að skoða spaisið mitt og sá svona helvíti fyndið um svona sex efstu vini sína og svona einhverju svoleiðis bulli, ég nenni því nú oftast ekki en ég lét vaða á að gera þetta núna og þetta var bara svona helvíti gaman, já ég veit ég er svottan myspace lúði. En hvað með það ég setti þetta rusl sem bulletin á spaicið mitt og ætla líka að henda þessu hérna ef einvher hefur mist af þessu.

- Don’t change your myspace top friends!
- Fill the people in below!
- Answer the questions truthfully!

[1] Hildur Sif
[2] Hallgrímur Andri
[3] John “ Spinner “ Jetson
[4] Weekend
[5] Kóngurinn
[6] Ingvar


1. Have you ever danced with number 3?
Já það höfum við gert, tökum all nokkra spinnera á dansgólfinu hérna fyrir ca ári síðan.

2. Where did you meet number 6?
Hvar hitti ég Ingvar, við kinntumst first í eftirminnilegri ferð til eyja þar sem við gerðum soonið frægt.

3. Have you ever gotten drunk with number 1?
Já en ekki mjög oft samt…

4. Have you ever kissed number 5?
Auðvitað

5. Has number 2 ever seen you naked?
Einum of oft.

6. Have you ever gone shopping with 3?
Já það held ég en Gulli minn er ekki þessi shooping típa…

7. Have you ever seen 5 in a swimsuit?
Já kallinn er flottastur þannig..

8. Have you ever met 1's familly?
Já mjög fljótlega eftir að við kynntumst…

9. Do you know 4's middle name?
Helgi Þór er kallinn..

10. Have you ever eaten anything in front of 6?
Já oft..

11. Do you trust number 2?
Já Hallgrímur er einn af mínum traustustu vinum..

13. Have you ever fought with number 1?
Nei, ótrúlegt en satt …

14. When is the last time you talked to 5 in person?
Alltof langt síðan það veit ég…


15. Are any of your top 6 family?
Númer eitt, kærasta mín.

16. Have you ever done something dangerous with number 6?
Hættulegt, heheh

18. Have you ever slept in the same bed with any of the six?
HEHE Eyjar

19. Do you think 4 and 5 would make a good couple?
J Þeir eru gott teimi í dag..

20. Would 3 do anything for you ?
Já pottþéttur..

21. Have you ever made out with number 6?
Nei

22. Have u ever kissed # 1?
Já soldið oft

23. Which have you known the longest?
Halla og Helga

24. Who have you known the shortest?
Hildi Sif

25. Has anyone in your top 6 seen you cry?
Það hlítur að vera, karlmenn gráta líka.

26. Have you had a crush on any of ur top 6?
Jább og stendur enn..

27. have you done anything illegal w/ num. 1?
Nie

28. Will 1 - 6 repost this?
Held ekki þetta eru ekki myspace lúðar..

29. Have you ever seen a movie with 2?
Mjög margar

30. If you could do anything right now what would it be?
beint að sofa sem ég er að fara gera akkurat núna…

 

kv: Gummi Borgar


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 19:33:05 / gummib

Djammið um helgina...

Já það var greynilega djammað um helgina og er ekki annað að sjá að mínir vinir hafi verið upp á sitt besta á tónleikum í höllinni, en þessar myndir lýsa því held ég best.


Daði kallinn og Hrolli  .....


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 17:17:12 / gummib

Árshátíð Háskólans í Reykjavík

Árshátíð Háskólans í Reykjavík var haldin hátíðleg seinasta föstudag í Bláa Lóninu. Við í Hátæknifræði bekknum byrjuðum á að hittast heima hjá Kollu og allir byrjuðu að fá sér nokkra, um klukkan sex var svo haldið upp í MBl og þarf tókum við rútu í lónið. Maturinn í Lóninu var mjög góður og Kalli var nettur sem veislustjóri. Í matnum fengum við að sjá árshátíðar video-ið sem var snilld og var tekið á öllum þeim þáttum held ég sem nemendur hafa tekið eftir í vetur eins og hann var snilld djókinn með gaurinn sem er með gulu gleraugun og fleiri sem voru snilld. Eftir myndbandið var síðan haldið massa ball með Ingó úr Idolinu í fararbroddi. Ég verð að segja að sá maður er snillingur á balli öll lögin sem gæjinn tók voru snilld.

En það er samt spurning um að þið kíkið á myndbandið. Árshátíðar video Pragma og Tvíundar 2007. Þetta er algjör snilld en það er smá einka háskóla húmor í þessu sem sumir kannski skilja ekki en kíkið samt á það.


Hérna er linkurinn ef þið viljið sjá þetta stórt.
http://video.google.com/videoplay?docid=2857360570409747260&hl=en

 

Ég ætti að luma á nokkrum myndum en ég veit ekkert hvar þær eru og hendi þeim bara inn seinna...

 Kv Gummi Borgar...

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 17:20:11 / gummib

Just another day in the daycare !!!

Jæja ég veit ekki hvar ég á að byrja, árshátið HR á föstudaginn sem sagt fyrsta árshátið meðan ég er í háskóla og skulum nú vona að þetta sé ekki sú síðasta. En málið er að ég held að flestir hafi ekki hugmynd um hvað þeir vilja gera áður en haldið verður upp í bláa lónið. En ég verð samt að segja að maður er eitur slakur á því, því ekki þarf maður að hafa áhyggjur af því í hverju maður ætlar að vera, kella gaf kallinum eina nýja skyrtu og þá er maður sáttur, þarf ekki meira á jakka og buxur og meir að segja þá á ég spariskó.

En já árshátiðin á fös og allt að gerast, en það er svo mikið að gera í skólanum að maður verður að halda áfram. En ég ætla að deila með þeim vitleisingum sem enn eru með síðuná mína í bookmarks og fara inn á hana einstöku sinnum þegar þeir opna alla í bloggsíðu foldernum í bookmarks, einu verkefni sem ég er að vinna að hérna í skólanum. Það má nú með sanni segja að maður er ekki í neinni skrifstofu verkfræði eins og sumir hérna í skólanum, ég er í alvöru verkfræði. En málið er að ég er að fara smíða felgulykil, fyrst þarf ég að hann hann og álagsgreyna til að gá hvort helvítið muni ekki brotna þegar hengt verður lóðið í hann. En ég ætla að leyfa ykkur að sjá prótótípuna af þessu rusli.

 

Svo sýni ég ykkur hvernig við erum að greyna þetta svo að vitum hvort þetta haldi eða ekki, en það verður að vera framhald ég nenni ekki að gera mynd af því núna .


Eins og sést á þessari mynd þá er verið að álagsgreyna draslið og sést hvað hann bognar mikið undan 50 kílóa lóðinu sem hengt er í hann á endanum þar sem bleika örin er. En þessi er í góðu lagi samt soldið þungur 340 grömm og með öriggisstuðul upp á 1,6 ca, og Von mises upp á 1,6*10^8 þannig þetta ætti nú allt að sleppa en það á eftir að bera þetta undir aðra meðlimi hópsins og ekkert er enn ákveðið hvort minn verði notaður eða ekki.

Ltr Gummi Borgar með kallinum Inga B

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 18:03:59 / gummib

The red bull base jump !!!

Þetta er eitt það rosalegasta video sem ég hef séð af base stökki. Þetta er gæji sem er að stökkva ofan í helli. Það er sem hann þarf að gera er að opna fallhlífina akkurat í 70 metrum fyrir ofan botninn á hellinum annars er hann fucked....

 Kíkið á þetta þetta er svakalegt !!!

http://www.youtube.com/watch?v=b-VXvA5hSjs


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 11:34:16 / gummib

Góðann daginn !!

Jæja góðann daginn, nú er maður mættur í skólann og búinn að taka sinn venjulega netrúnt þegar maður mætir. Venjulegur dagur, þegar maður mætir er ca svona, mæting í skólann, rölt tekið um skólann og leitað að einvherjum vitleisingum til að setjast og læra með, þegar það er búið að fynna einhvern sem er nógu góður fyrir mann :) þá hlammar maður sér þar og rífur upp draslið sitt. Þá er það þessi venjulegi netrúntur eins og ég kalla hann, en það er það fyrsta sem maður gerir áður en maður getur farið að gera nokkurn skapaðan hlut, en netrúnturinn felst í því að tékka mailið, tékka spaicið, tékka bloggið og ath hvort einhver vitleisingur hefur commentað á eitthvert bloggið. En þegar þessu líkur þá er séns að fara gera eitthvað. En núna lennti ég á einvherri síðu þar sem ég sá gott skot úr einni mynd sem er soldið gömul en frekar töff, en það er þegar Angelina Jolie er að fara stela einum bíl í Gone in 60 sec. Góð mynd og komið langt síðann maður sá hana.

En hérna er kossinn hennar ....
Enjoy

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 15:14:03 / gummib

hhahahah

Shitt ekki vissi ég hvað Tom Cruise er fucking lítill. Þetta er víst einvher mynd sem hann vildi að færi ekki á netið. En já ef ég væri hann þá myndi ég ekki vilja að þessi mynd færi á netið, þetta lítur ekki vel út fyrir greyjið hehehaha...



Kv Gummi Borgar

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 20:01:34 / gummib

Fyrsta færslan árið 2007

Fyrsta bloggið á nýju ári verð að segja að þetta sé stórt skref fyrir lítinn mann eins og mig að kasta þessu fram. En já það er komið nýtt ár og menn eru bara nokkuð sprækir að ég held. Málið er að ég þurfti að byrja á að fara í eitt skitið endurtektarpróf 6. Jan sem var bara pirrandi að geta ekki verið bara að chilla og leika sér í öllu jólafríinu. En já ég var að læra fyrir þetta eftir áramótin hrikalegu sem ég verð að segja aðeins frá hérna á eftir. En þetta próf endaði bara ágætlega ég pullaði áttuna í þessu helvíti og verð ég að segja að ég sé bara nokkuð sáttur með það því ég held að ég hafi ekki fengið svona hátt í stærðfræði frá því að skólaganga mín hófst, en það er aldrei og seint að byrja að fá góðar einkannir en gott að byrja núna þegar háskólanámið er að rétt að byrja. En nóg af þessu bulli sem enginn nennir að hlusta á.

Menningaferð háskólanna er næstu helgi ,, eða öllu heldur fyllerís ferð háskólanna til akureyrar. Háskólanemar eru bestir í að fynna einvher góð orð yfir það að fara á fyrrerí, eins og ferðin sem var farin núna um þessa helgi til akureyrar þar sem farið var í vísindaferð til London. Hvað er það, ? Það er ekkert annað en massa fyllerís ferð sem sannaði sig bara þegar félagar mínir úr verkfræðinni hringdu í mig blinda full á Sunnudeginum um svona 14:00 sem er um miðjan dag. En já þetta er bara djamm og meira djamm. En menningaferð háskólanna er núna um helgina og er góð spurning um að skella sér með, en þá verð ég alveg edrú og verð bara á bretti að leika mér í fjöllunum þar sem ég er pro á bretti eins og allir vita. Kallinn er líka sponsaður frá bestu búðinni í bænum BRIM og með allar flottustu græjurnar þaðan. Þessi ferð er öruglega mjög svo skemmtileg ferð og er maður búinn að heyra að stemmingin sé massíf fyrir þessu.  En já það kemur í ljós hvað maður gerir þegar að þessu kemur....

En Elli var að koma frá London og kom með þessa massífu húfu handa mér ... 

 




» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 23:55:08 / gummib

Jólafrí sem er vinnufrí, ekki frí frá vinnu !!

Nú er jólafríið byrjað og maður hefur lítið sem ekkert að gera nema að fara í vinnuna og vinna langt fram eftir, maður á ekki blautan eftir þessa önn. Það verður að segjast að það gengur á veskið að vera í skóla. En já nú er bara unnið langt fram eftir og eftir vinnu er bara slakað á og farið að sofa. Annars er bara massa gott að frétta og maður nett farinn að hlakka til jólanna, þó svo að ég hafi passað mig á að fara sem minnst í kringluna hingað til en kannski það sé kominn tími á það að fara kíkja það er svo stutt í jólin. Maður á eftir að kaupa allar gjafirnar... shetttt.....

Hér er ein nett jólamynd til að koma fólki í fíling ............................


Maður spyr sig ....

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 13:08:12 / gummib

Helgi það er helgi framundan !!


Sælar...

Helgi kíkti til mín í gær að ná í einvherja diska sem honum vantaði og var hann í dúndur stuði, það er greynilegt að það er sovna svakalega skemmtilegt að læra.. sérstaklega þarna í HÍ. En allaveganna þá var hann að pæla hvort að það væri allir game í smá casino royal uppi í bústað hjá Inga á Bifröstinni. Málið er að ég held að það geti orðið massa gaman en ég er með bókaða smá létta áfengislausa vísindaferð um 4 leitið, og svo er spurning hvort að ég fari að vinna á laugardeginum en það kemur í ljós á eftir eða á morg hvort að ég þurfi þess. En málið er hvort að það sé ekki stemmari fyrir þessu. Ég er 50/50 chance of full house en hvað með ykkur... ???

En svona þegar við förum að tala um casino royal, þá er þetta geðveik mynd...


Ef ég mæti þá verð ég pott þétt með royal flush


Eða að þið pakkakassarnir verðið með eikkað vesen þá þarf ég að fara sýna trappana.....


Hann er F svalur..

Jæja núna rétt í þessu var ég að fá símhringingu frá honum Inga B þar sem hann var ekki ánægður, ég var hálf smeikur þegar ég heyrði röddina í honum og hann segir " breittu þessu strax þetta er ekki bústaður þetta er óðalsetur ". Ég var ekki lengi að breyta þessu enda er hann enn í símanum að bíða eftir að ég klári þetta og hann ætlar víst ekki að skella á fyrr en þetta er komið.

En þá vitið þið það þetta er ekki bústaður þetta er setur ég giska á um 400m^2 og kostar um 400 millur....

Þá kveð ég aftur en þetta var uppfærsla á blogginu .. Ltr

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012
Skemmtanalífið
Hefuru ekkert að gera ??